29. september 2011
Örn Bergsson formaður Landssamtaka landeigenda á Íslandi kom fram í útvarpsfréttum Ríkisútvarpsins í síðustu viku þar sem hann gagnrýnir drög að nýjum jarða- og ábúðarlögum sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið kynnti í vor. Samkvæmt þeim má sami eigandi ekki eiga fleiri en þrjár jarðir og einnig er gert ráð fyrir ábúðarskyldu á lögbýlum. Í viðtali við fréttamann RÚV sagði Örn að hin nýju lög yrðu afturhvarf til fortíðar en samtökin hafa gagnrýnt ákveðna þætti í drögunum. Sérstaklega tók Örn fram að skilgreiningin á orðinu lögbýli væri gagnrýnisverð þar sem henni er breytt þannig að matvælaframleiðsla verði að vera á býlinu til þess að það teljist lögbýli. Þetta gerir það að verkum að hvorki ferðaþjónustubýli né hrossaræktunarbýli muni teljast til lögbýla en Örn telur það miður þar sem sveitir landsins þurfi á fjölbreytni að halda. Hin nýju lög muni einnig lækka jarðaverð þar sem hver aðili má aðeins eiga þrjár jarðir en slíkt henti ekki alltaf nútímabændum, sér í lagi á þeim jörðum þar sem jörð hefur verið skipt í nokkrar minni jarðir. Þessar minni jarðir beri hreinlega ekki nútíma-búskap.
Haldnir hafa verið fundir bæði á Akureyri, Hvanneyri og Hellu þar sem drög að hinum nýju lögum voru rædd en nokkrir stjórnarmeðlima samtakanna sóttu þessa fundi. LLÍ hefur fundið fyrir eindreginni andstöðu landeigenda gegn þessum frumvarpsdrögum og munu beita sér gegn þeim eins og fram kemur í umsögn samtakanna.
Sjá má drögin að hinum nýju jarða- og ábúðarlögum hér til hliðar undir „Greinar og lög“ ásamt umsögn samtakanna um þau.
Hlusta má á fréttina hér.