22. september 2011
Haft var samband við formann Landsamtaka landeigenda á Íslandi, Örn Bergsson, á dögunum vegna tilboðs Huang Nubo í jörðina Grímsstaði á Fjöllum og birtist greinin í Morgunblaðinu 7. september. Örn var þar inntur eftir viðbrögðum LLÍ við tilboðinu en svaraði hann því til að samtökin hafi ekki mótað afstöðu til þeirrar umræðu sem skapast hafi vegna sölunnar á Grímsstöðum en sagðist fagna því ef slík tilboð yrðu til þess að verðgildi jarða hækkaði. Aðspurður sagðist hann ekki hafa orðið var við aukinn áhuga erlendra aðila á íslenskum jörðum en hinsvegar sagðist hann hafa orðið var við það menn væru farnir að líta til óspilltra víðerna sem verðmæta. Örn sagði að auki það vera ótækt að binda landeigendur í átthagafjötra með því að koma í veg fyrir sölu á sölu jarða. Ef slíkt væri hins vegar gert yrði ríkið að ganga inn í kaupin teldu þau ástæðu til að ákveðnar jarðir væru í eigu þjóðarinnar.
Lesa má fréttina í heild sinni í blaði Morgunblaðsins, miðvikudaginn 7. september.