11. febrúar 2011
Landssamtök landeigenda á Íslandi (LLÍ) efna til málþings um þjóðareign á auðlindum að loknum aðalfundi samtakanna þann 17. febrúar næstkomandi.
Aðalfundurinn verður haldinn í Harvardsal 2, Hótel Sögu, og hefst kl. 14:00.
Dagskrá aðalfundar:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins.
2. Önnur mál.
Eftir aðalfundinn, kl. 15:30, fer fram málþing á sama stað um þjóðareign á auðlindum.
Dagskrá:
1. Hvað merkir hugtakið þjóðareign?
Sigurður Líndal prófessor.
2. Þjóðareign og hvað svo?
Sigurður Tómas Magnússon prófessor.
3. Meðferð á þjóðareign.
Sigurður Jónsson, hrl. og stjórnarmaður í LLÍ.
4. Pallborðsumræður með framsögumönnum.
Bæði aðalfundurinn og málþingið eru opin öllum áhugamönnum um málefnið.
F.h. stjórnar LLÍ,
Örn Bergsson