Frjálslyndir fyrstir til að svara

24. apríl 2007

Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, var fyrstur flokksforingja til að svara erindi Landssamtaka landeigenda þar sem gengið var eftir skriflegri afstöðu flokka og frambjóðenda til þjóðlendumálsins. Samtökunum barst bréf frá Guðjóni Arnari, dagsett 16. apríl 2007, þar sem staðfest er að Frjálslyndi flokkurinn vilji virða „þinglýstan eignarrétt landeigenda og landeigendabréf.“

Í bréfi frjálslyndra segir síðan orðrétt:

„Einnig ber að virða eignarlönd, enda hefðu eigendur greitt af þeim eignum skatta og skyldur til ríkis og sveitarfélaga. Við í Frjálslynda flokknum munum þess vegna standa að því að sú réttarstaða verði tryggð sem tryggi viðhorf okkar í þessu máli. Það er okkar skoðun að ef löglegir pappírar verði ekki virtir séum við að fara út í algert fúafen sem enginn botn verði í sem byggja megi á um landareignir fólks.“