Bændasamtök Íslands | 12. apríl 2007
Síðastliðinn þriðjudag stóðu Búnaðarsamband Skagafjarðar og Búnaðarsamband Eyjafjarðar fyrir fundum um þjóðlendumál á Löngumýri í Skagafirði og Hótel KEA á Akureyri. Frummælendur voru Ólafur Björnsson, lögfræðingur, Guðný Sverrisdóttir, formaður Landssamtaka landeigenda á Íslandi og Gunnar Sæmundsson stjórnarmaður í landssamtökunum. Um 60 – 80 manns voru á hvorum fundi. Báðir fundirnir voru málefnalegir og fróðlegir. Nokkrir þingmenn og frambjóðendur mættu á báða fundina og virðast augu ýmissa vera að opnast fyrir ranglæti þjóðlendulaganna og framkvæmd þeirra. Einnig boðar fjármálaráðherra breyttar verklagsreglur við framkvæmd laganna. Ef til vill á hér við að dropinn holar steininn.
Eftirfarandi ályktun var gerð á fundi um þjóðlendumál á Löngumýri í Skagafirði 10. apríl 2007:
“Almennur fundur á vegum Búnaðarsambands Skagfirðinga haldinn á Löngumýri 10.apríl ´07 mótmælir harðlega túlkun og framkvæmd þjóðlendulaganna af hálfu ríkisvaldsins, enda er þar gengið gegn þeim skilningi og þeim markmiðum sem lögð voru í tilgang laganna. Fundurinn minnir á að eignarrétturinn er stjórnarskrárbundinn og friðhelgur.
Fundurinn skorar á landeigendur að halda fram rétti sínum og krefja ríkisstjórn og Alþingi um bætt vinnubrögð og að lögum um þjóðlendur
nr 58/1998 verði breytt á þann veg að það land sem samkvæmt þinglýstu landamerkjabréfi og/eða heimildaskjali skuli teljast eignarland.”
