22. mars 2007

Sturla Böðvarsson samgönguráðherra, Jóhann Ársælsson þingmaður og Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra í þungum þönkum.
Síðastliðinn þriðjudag stóð Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda fyrir fundi á Blönduósi um þjóðlendumál. Frummælendur voru Ólafur Björnsson lögfræðingur, Guðný Sverrisdóttir, formaður Landssamtaka landeigenda á Íslandi og Gunnar Sæmundsson, stjórnarmaður í landssamtökunum. Um 140 manns sátu fundinn og var hann bæði málefnalegur og fróðlegur. Þessa dagana eru fleiri búnaðarsambönd að skipuleggja fundi um þjóðlendumálin. Stjórn landssamtakanna skorar á búnaðarsamböndin að stofna til svipaðra funda um allt land á næstu vikum.