31. mars 2007
Stjórn Landssamtaka landeigenda fól Guðrúnu Gauksdóttur, dósent í Háskólanum í Reykjavík, og Sigurði Líndal, fyrrverandi lagaprófessor í Háskóla Íslands, að semja greinargerðir um álitaefni tengd þjóðlendumálum fyrir samtökin. Guðný Sverrisdóttir, formaður LLÍ, býst við að stjórninni berist greinargerðirnar fljótlega eftir páska.
Guðrún Gauksdóttir var einn frummælenda á stofnfundi landssamtakanna í janúar og fjallaði þá um meðferð þjóðlendumála í athyglisverðu erindi. Hún er stjórnarformaður Auðlindaréttarstofnunar við Háskólann í Reykjavík og sérmenntuð í eignarrétti og mannréttindum.
Svo vill til að nýlega er út komin bókin Þjóðareign á vegum Rannsóknarmiðstöðvar um samfélag um samfélags- og efnahagsmál og bókaútgáfunnar Uglu. Þar er fjallað á fræðilegan hátt um þýðingu og áhrif stjórnarskrárákvæðis um þjóðareign á auðlindum sjávar. Höfundar eru sex talsins, þar á meðal Guðrún Gauksdóttir og Sigurður Líndal. Víst er að viðfangsefni fræðimannanna þarna tengjast á margan hátt því sem landeigendur standa frammi fyrir í þjóðlendumálinu. Því er vakin athygli á bókinni hér á þessum vettvangi.