31. mars 2007
,,Við stjórnarmenn hittum fulltrúa allra þingflokka og fjármálaráðherrann sömuleiðis í kjölfar þess að landssamtökin voru stofnuð. Við höfum kynnt málstað landeigenda á opnum fundi á Blönduósi og hliðstæðir fundir eru boðaðir í Skagafirði og á Akureyri 10. apríl. Stjórnarmaðurinn Gunnar Sæmundsson í Hrútatungu hefur auk þess farið með boðskapinn inn á aðalfundi Búnaðarsambands Vesturlands og Búnaðarfélags Fellsstrandar og Hvammssveitar. Framundan eru alþingiskosningar, eins og allir vita, og við munum að sjálfsögðu halda stjórnmálamönnum og frambjóðendum við efnið og jagast í þeim áfram!” segir Guðný Sverrisdóttir, formaður Landssamtaka landeigenda á Íslandi.
,,Málflutningur okkar hefur vissulega hljómgrunn víða og margir alþingismenn segjast til dæmis sammála sjónarmiðum landeigenda, bæði úr röðum stjórnarliða og stjórnarandstæðinga. Ég get ekki varist því að spyrja sjálfa mig: Hvers vegna beittu þessir sömu stjórnmálamenn þá sér ekki fyrir því að breyta þjóðlendulögunum?”
,,Fjármálaráðherrann hefur gefið til kynna að ríkisvaldið muni breyta eitthvað verklagi sínu í þjóðlendumálum. Hann ákvað á dögunum að áfrýja ekki þjóðlendudómi á Suðurlandi til Hæstaréttar og það kann að vera vísbending um breytt vinnubrögð. Betur má hins vegar ef duga skal og þar vísa ég til afdráttarlausrar kröfu stofnfundar landssamtaka okkar um að Alþingi breyti sjálfum þjóðlendulögunum hið snarasta á þá leið að land, með athugasemdalausu þinglýstu landamerkjabréfi, skuli teljast eignarland,” segir formaður LLÍ.
