Haustið hjá LLÍ

15. september 2011

Fundargerðir 28. og 29. stjórnarfundar LLÍ hafa nú verið settar inn og má nálgast þær undir Stjórn – Fundargerðir.

Á síðusta fundi var meðal annars rætt um sölu Grímsstaða á Fjöllum, samskipti landeigenda Reykjahlíðar og Vegagerðarinnar sem og helstu verkefni sem liggja fyrir. Nú í haust ætla samtökin meðal annars að óska eftir fundi með vegagerðinni til að ræða málefni landeigenda. Samtökin munu að sjálfsögðu halda áfram fylgjast með málum Óbyggðanefndar en Húnavatnssýslur verða teknar fyrir hjá nefndinni í byrjun næsta árs. Nýjasta fundargerðin kemur svo inn á allra næstu dögum.