Landssamtök landeigenda hafa sent Alþingi athugasemdir sínar við tillögu að frumvarpi til nýrrar stjórnarskrár. Þær má lesa í heild sinni hér en LLÍ leggur áherslu á að tillaga þessi að frumvarpi til nýrrar stjórnarskrár sem samin var stjórnlagaráði fái vandaða meðferð. Landssamtökin leggjast eindregið gegn hugmyndum um að tillagan verði borin undir þjóðaratkvæði í óbreyttri mynd og vænta þess að Alþingi víki sér ekki undan þeirri skyldu að koma efnislega að endurskoðun nýrra stjórnskipunarlaga teljist brýn þörf til breytinga á stjórnarskrá lýðveldisins. LLÍ telja margvíslega annmarka á fram kominni tillögu sem lesa má í athugasemdum sem LLÍ sendi Alþingi. Stjórn LLÍ telur þörf á að fara varlega í að umbylta núgildandi stjórnarskrá en að hennar mati á stjórnarskrá að vera hnitmiðuð í orðalagi og inntak einstakra greina skýrt og eins laust og hægt er við gildishlaðið málskrúð. Það á ekki síst þegar kveðið er á um réttindi almennings sem snerta skulu þau réttindi einstaklinga sem nú eru varin í lögum og gildandi stjórnarskrá þar með talinn eignarréttinn.
Hvetjum við félagsmenn og aðra til að kynna sér athugasemdir LLÍ við einstaka greinar sem finna má hér.