Súrt og sætt á svæði 7

10. október 2011

Óbyggðanefnd úrskurðaði í dag um 14 landssvæði á vestanverðu Norðurlandi. Fjögur þeirra eru eignarlönd, níu eru þjóðlenda og afrétt og eitt er þjóðlenda að hluta og afréttur að hluta. Slóðir á úrskurðina í heild og tilheyrandi kort eru birtar neðst í þessari frétt.

1.
Niðurstaða Óbyggðanefndar á þeim hluta svæðis 7 sem nefndist „Eyjafjörður ásamt Lágheiði en án Almennings norðan Hrauna“

Eignarlönd:
· Vífilstaðir/Kot í Svarfaðardal.
· Þorvaldsdalsafrétt.

Þjóðlenda og afréttur eða í afréttareign:
· Hnjótafjall (land Atlastaða í Svarfaðardal).
· Skíðadalsafrétt.
· Möðruvallaafrétt.
· Bakkasel.
· Stífluafrétt og Lágheiði.

Þjóðlenda (en ekki afréttur eða í afréttareign):
· Landsvæði norðaustan Stífluafréttar og Lágheiðar.

2.
Niðurstaða Óbyggðanefndar á þeim hluta svæðis 7 sem nefndist „Skagafjörður ásamt Almenningi norðan Hrauna en án Lágheiðar“

Eignarlönd:
· Almenningur norðan Hrauna.
· Kolbeinsdalsafrétt (Hólaafrétt).

Þjóðlenda og afréttur eða í afréttareign:
· Hrolleifsdalsafrétt.
· Flókadalsafrétt.
· Unadals- og Deildardalsafréttir.
· Silfrastaðaafrétt og Krossland.

Úrskurðir Óbyggðanefndar fyrir svæði 7 í heild sinni

1. Eyjafjörður ásamt Lágheiði en án Almennings norðan Hrauna
2. Úrskurðarkort A fyrir Eyjafjörð
3. Úrskurðarkort B fyrir Eyjafjörð.
4. Skagafjörður ásamt Almenningi norðan Hrauna en án Lágheiðar
5. Úrskurðarkort A fyrir Skagafjörð
6. Úrskurðarkort B fyrir Skagafjörð